Vertu þinn eiginn stílisti! ELEMENTS vörulínan okkar dregur fram stílistann í þér! Elements nafnið segir allt sem segja þarf, samanstendur af aðskildum hlutum sem þú raðar saman eftir þínu höfði . Hægt er að velja um tvo liti, ljósan (natural) eða dökkbæsaðan (onyx) eikarspón og opna skápa í lökkuðu MDF í beinsvörtum eða grænum lit. Vegna margra valkosta passa Elements skáparnir nánast hvar sem er. Efsta lagið er úr ekta viði og sýnir dæmigerð einkenni eikar, svo sem loga- og kornateikningar og fallega litatóna.