Cube línan er einstaklega stílhrein, falleg og með hreinar línur. Hún er minimalísk og passar vel inn í nýtískulegt umhverfi. Húsgögnin eru alfarið úr áli og þess vegna viðhaldsfrí að öllu leiti og þola vel íslenskt veðurfar.
Sessur og púðar eru úr vatnsfráhrindandi efni sem þolir vel stuttar skúrir því auðvelt er að strjúka vatnið af, en ráðlagt er að nota yfirbreiðslu eða færa þær inn ef ekki á að nota þær í lengri tíma.
Þriggja sæta sófinn er fallega hannaður og þægilegur og með þykkum sessum og virkar bæði sem stakur sófi og í setti með hægindastól og borði.
Yfirborðið er dufthúðað í svörtum lit og svargrátt vatnsfráhrindandi efni í sessum.
Efni: Ál, dufthúðað yfirborð
Mál: B 230 x D 85 x H 65 SM