Söluráðgjafi í verslun getur sýnt þér svipaða vöru úr sama efni og/eða með sömu áferð
Olav stóllinn er lagervara í þremur litum í áklæðablöndunni Secilia/Vito, með handfangi á baki og með/án hjóla.
Einnig er hægt að sérpanta Olav borðstofustól í öllum okkar áklæðum þar á meðal í leðri, annaðhvort í einu efni eða í áklæðablöndu þar sem sitthvort efnið er valið annarsvegar á stólbak/setu og hinsvegar á stólinn aftanverðan.
Ef stóllinn er sérpantaður er einnig hægt að sleppa handfangi á baki.
Sérpöntun tekur á bilinu 14-16 vikur að koma á lager hjá okkur, vinsamlegast hafið samband við verslun fyrir frekari upplýsingar.